Skilmálar

Skilmálar

Almenn ákvæði

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru á vefnum www.primaco.is, í eigu Prima & Co ehf., kt.560714-1730, – í skilmálum þessum nefnt Primaco. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Primaco annars vegar og kaupanda vöru hins vegar.

Verð

Verð á vefsíðunni eru með virðisaukaskatti samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum frá söluaðila og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur.

Vöruskil & endurgreiðslur

Eftir greiðslu fæst vara ekki endurgreidd nema að viðurkenndur galli komi upp eða röng vara hafi verið afgreidd.

Gallar & ábyrgðarskilmálar

Ef vara er gölluð eða eitthvað vantar í vöruna fær viðskiptavinur nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.

Ábyrgð seljanda er í samræmi við það sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð á galla á sérvöru er 2 ár frá því að kaupandi fékk vöru afhenta. Ef hinsvegar er að ræða sölu á sérvöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár. Ábyrgð er ekki staðfest nema pöntunarstaðfestingu og kvittun fyrir kaupum sé framvísað. Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru. Ábyrgð fellur jafnframt niður ef rekja má bilun til rangrar meðferðar á vöru.

Lög og varnarþing

Íslensk lög skulu gilda um viðskiptaskilmála þessa, samninga og eftir atvikum tilboð sem Primaco gerir við viðskiptavini sína. Ágreining um framkvæmd samnings skulu Primaco og viðskiptavinur leitast við að leysa með samkomulagi. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Heimilt er að vísa ágreiningi til gerðardóms ef báðir aðilar eru því samþykkir og skulu lög nr. 53/1989 um samningsbundna gerðardóma gilda um málsmeðferð fyrir gerðardómi.

Afhendingarskilmálar

Afhendingarmátar & flutningsaðilar

Alltaf er í boði að sækja pantanir í sýningarrými Primaco sé þess óskað. Viðskiptavinir fá tölvupóst þegar pöntun er klár til afhendingar.

Afhendingartími

Pöntun er afgreidd innan sólarhrings að jafnaði og fer þá í útkeyrslu eða til dreifingaraðila.

Sendingarkostnaður

Primaco dreifir vörum til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu þeim að kostnaðarlausu, þó með því skilyrði að upphæð pöntunar nái 50.000 kr.

Nái pöntunin ekki þessu lámarki fellur til akstursgjald að upphæð 2.500 kr. sem og gjald samkvæmt gjaldskrá Flytjanda fyrir landsbyggðina.

Persónuupplýsingar

Primaco meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Persónuupplýsingar sem berast Primaco eru skráðar rafrænt í gagnagrunn Primaco og aðeins umsjónaraðili kerfisins hefur aðgang að þeim. Persónuupplýsingar eru ekki veittar þriðja aðila.

Við kaup á vöru eða þjónustu veitir kaupandi Primaco samþykki sitt til að safna og vinna úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. Úrvinnsla gagna fer fram svo lengi sem kaupandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef kaupandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til Primaco í tölvupósti á primaco@primaco.is eða bréflega á heimilisfang Primaco. Upplýsingum um kaupanda verður þá eytt úr gagnagrunninum og kaupandi upplýstur um það sérstaklega.

Primaco áskilur sér rétt til að nota persónuupplýsingar til að senda viðskiptavinum markpósta með tölvupósti og/eða sms-skeytum, er það gert í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum sem besta þjónustu.

Frágangur viðskipta

Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Primaco.

Hver kaup eru bindandi fyrir kaupendur samkvæmt skilmálum og skilyrðum Primaco.