Persónuverndarstefna

Almennt

Primaco hefur einsett sér að tryggja trúnað, áreiðanleika og tiltækileika persónuupplýsinga í hvívetna.

Í persónuverndarstefnu þessari er því lýst hvernig Primaco vinnur með persónuupplýsingar viðskiptavina sinna. Öll vinnsla fyrirtækisins á persónuupplýsingum fer fram á grundvelli laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“).

Primaco meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Persónuupplýsingar sem berast Primaco eru skráðar rafrænt í gagnagrunn primaco og aðeins umsjónaraðili kerfisins hefur aðgang að þeim. Persónuupplýsingar eru ekki veittar þriðja aðila.

Við kaup á vöru eða þjónustu veitir kaupandi Primaco samþykki sitt til að safna og vinna úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. Úrvinnsla gagna fer fram svo lengi sem kaupandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef kaupandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til Primaco í tölvupósti á primaco@primaco.is. Upplýsingum um kaupanda verður þá eytt úr gagnagrunninum og kaupandi upplýstur um það sérstaklega.

Primaco áskilur sér rétt til að nota persónuupplýsingar til að senda viðskiptavinum markpósta með tölvupósti og/eða sms-skeytum í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum sínum sem besta þjónustu.