Vöruskil og endurgreiðslur

Almenn ákvæði

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru á vefnum www.primaco.is, í eigu Prima & Co. ehf, kt. 560714-1730, – í skilmálum þessum nefnt Primaco. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Primaco annars vegar og kaupanda vöru hins vegar.

Verð

Primaco áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð. Verð á vefsíðunni eru með virðisaukaskatti samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum frá söluaðila og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur.

Afhending

Afhendingarmátar & flutningsaðilar

Alltaf er í boði að sækja minni pantanir í sýningarrými Primaco, Auðbrekku. Viðskiptavinir fá tölvupóst þegar pöntun er klár til afhendingar.

Afhendingartími

Pöntun er að jafnaði afgreidd innan sólarhrings og fer þá í útkeyrslu eða til dreifingaraðila.

Sendingarkostnaður

Primaco dreifir vörum til viðskiptavina um land allt þeim að kostnaðarlausu, þó með því skilyrði að upphæð pöntunar nái 50.000 kr.

Nái pöntunin ekki þessu lámarki bætist við akstursgjald að upphæð 2.500 kr. m. vsk eða gjald samkvæmt gjaldskrá Flytjanda.

Sérpantanir

Þegar um sérpantanir er að ræða er afhendingartími frá 4 - 8 vikum. Farið er fram á 50% staðfestingargjald þegar varan er pöntuð og afgangurinn greiddur þegar varan er afhent. Ef hætt er við sérpöntun fæst 50% staðfestingargjald ekki endurgreitt.

Skilafrestur

Eftir greiðslu fæst vara ekki endurgreidd nema að viðurkenndur galli komi upp eða röng vara hafi verið afgreidd.

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan tilfallinn kostnað sem um ræðir eða endurgreiðum sé þess krafist. Ábyrgð seljanda er í samræmi við það sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð á galla á sérvöru er 2 ár frá því að kaupandi fékk vöru afhenta. Ef hinsvegar er að ræða sölu á sérvöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár. Ábyrgð er ekki staðfest nema pöntunarstaðfestingu og kvittun fyrir kaupum sé framvísað. Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru. Tilkynningarfrestur kaupanda vegna galla í vöru er tvö ár eða eftir atvikum fimm ár ef hluti er ætlaður verulega lengri endingatími en almennt gerist sbr. 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Ábyrgð

Áhætta af söluhlut flyst yfir til neytenda þegar hann hefur veitt honum viðtöku sbr. 14. gr. laga um neytendakaup nr. 48/2003. Þegar áhætta af hinni seldu vöru hefur flust yfir til kaupanda hefst skylda hans til þess að greiða kaupverðið þótt varan kunni eftir það að farast, skemmast eða rýrna ef um er að ræða atvik sem ekki má rekja með beinum hætti til seljanda. 

Frágangur viðskipta

Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Primaco. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupendur samkvæmt skilmálum og skilyrðum Primaco.

Fyrirvari

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila skal bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Dugir það ekki verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.