Skilmálar

Verð

Primaco áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð. Verð á vefsíðunni eru með virðisaukaskatti samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum frá söluaðila og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

Vöruskil og endurgreiðslur

Eftir greiðslu fæst vara ekki endurgreidd nema að viðurkenndur galli komi upp eða ef röng vara hefur verið afgreidd.

Gallar og ábyrgðarskilmálar

Ef vara er gölluð fær viðskiptavinur nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.

Ábyrgð seljanda er í samræmi við það sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð á galla á sérvöru er 2 ár frá því að kaupandi fékk vöru afhenta. Ef hinsvegar er að ræða sölu á sérvöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár. Ábyrgð er ekki staðfest nema pöntunarstaðfestingu og kvittun fyrir kaupum sé framvísað. Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru. Ábyrgð fellur jafnframt niður ef rekja má bilun til rangrar meðferðar á vöru.

Afhendingarskilmálar

Vörur eru keyrðar til viðskiptavina innan höfuðborgarsvæðisins þeim að kostnaðarlausu. Við sendum viðskiptavinum tölvupóst þegar pöntun er klár til afhendingar vilji viðskipavinurinn sækja vörurnar sjálfur. 

Afhendingartími

Pöntun fer í útkeyrslu eða til dreifingaraðila innan 48 klst að jafnaði. 

Sendingarkostnaður

Primaco sendir vörur til viðskiptavina sinna um land allt og fellur til sendingarkostnaður að upphæð 2.500 m/vsk ofan á verð pöntunar.

Persónuupplýsingar

Primaco meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Persónuupplýsingar sem berast Primaco eru skráðar rafrænt í gagnagrunn Primaco og aðeins umsjónaraðili kerfisins hefur aðgang að þeim. Persónuupplýsingar eru ekki veittar þriðja aðila.

Við kaup á vöru eða þjónustu veitir kaupandi Primaco samþykki sitt til að safna og vinna úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. Úrvinnsla gagna fer fram svo lengi sem kaupandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef kaupandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til Primaco í tölvupósti á sala@primaco.is. Upplýsingum um kaupanda verður þá eytt úr gagnagrunninum og kaupandi upplýstur um það sérstaklega.

Primaco áskilur sér rétt til að nota persónuupplýsingar til að senda viðskiptavinum markpósta með tölvupósti og/eða sms-skeytum, er það gert í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum sem besta þjónustu.

Frágangur viðskipta

Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála Primaco.

Hver kaup eru bindandi fyrir kaupendur samkvæmt skilmálum og skilyrðum Primaco.

Fyrirvari

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila skal bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Dugir það ekki verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á primaco@primaco.is.

 

Aðrar upplýsingar

Heildverslunin Primaco er rekin af Prima & Co. ehf.

Kennitala: 560714-1730.

VSK númer: 117822

Reikningsnúmer: 0526 - 26 - 560714

Félagið er skráð hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.